showcase

Leiðbeiningarbók fyrir RAI uppfærð

Nú hefur matshandbók fyrir Rai NH verið uppfærð.  Hér er hægt að nálgast hana.  Handbók.

Breytingar á Nettengingum

Nú hefur öllum tengingum verið breytt hjá þeim stofnunum sem notuðu svokölluð SMART-KORT og lesara til að komast inn í kerfin hjá Stika og nú hefst seinni hluti innleiðingarinnar sem er að breyta öllum tengingum sem eru á Frame-relay tengingum þ.e.a.s. eru með Router frá Stika sem er sérstaklega ætlaður í tengingu í RAI og Vistunarmatið.  

Við gerum ráð fyrir því að þetta taki mjög langan tíma að breyta hjá öllum stofnunum á landinum og því er ekki úr vegi að hefjast handa strax.  Það sem er gert er að gamlibúnaðurinn er tekinn úr notkun og nýr búnaður settur upp sem bæði er hægt að nýta í nettenginu við internet og tölvupóst ásamt því að geta komist í samband við Stika og aðrar stofnanir og þjónustur sem nýta VPN skilríki við tengingar. 

Þess ber að geta að mögulega muni falla til kostnaður vegna kaupa á búnaði sem ekki er þegar til hjá viðkomandi stofnun svo og kostnaður sem felst í vinnu aðkeyptra sérfræðinga vegna þessara breytinga. Nánari upplýsingar veitir Þjónustustjóri Stika í síma 5700600

Hér er hægt að sækja skjal til samþykkis vegna breytingnna. icon Samþykki fyrir breytingu á nettengingu

Vefsíða RAi og Vistunarmats

Á þessari heimasíðu munu birtast ýmsar upplýsingar, bæði varðandi RAI dvalar- og hjúkrunarheimilamat (RI-NH), RAI heimahjúkrunarmat (RAI-HC) og vistunarmat aldraðra. Hægt verður að nálgast uppfærslur á hugbúnaði fyrir RAI kerfin og uppsetningarpakka fyrir vistunarmat aldraðra sem og handbækur og leiðbeiningar fyrir kerfin. Áríðandi tilkynningar til notenda þessara kerfa verða jafnframt settar inn á þessa heimasíðu. Það er von verkefnahópa um RAI og vistunarmat að þessi heimasíða komi að tilætluðum notum.