Uppfæra RAI kerfið

Nýjasta útgáfa RAI forritsins er 3.2.1. Fara skal eftir eftirfarandi leiðbeiningum við uppfærslu forritsins.

Ný Instant Client útgáfa af RAI icon Rai með Instant Client (þarf ekki Oracle uppsettann)

Uppsetning miðað við að forritið er geymt á einum stað, oftast á netdrifi sem allir notendur kerfisins hafa aðgang að. Þetta á við um nánast alla þá staði sem nota kerfið. Í þessu tilviki þarf bara að uppfæra forritið einu sinni, þ.e.a.s. hver og einn notandi þarf ekki að gera það.

  • 1. Áður en forritið er uppfært þarf að ganga úr skugga um að enginn sé að nota það. Allir notendur sem eru með forritið opið þurfa að slökkva á því.
  • 2. Smella skal með músinni á hlekkinn hér til hliðar.  icon RAI Forritið
    Þegar File Download glugginn birtist skal smella á Save takkann og þegar Save as glugginn birtist skal finna þá möppu þar sem skráin Rai.exe er geymd og velja síðan "Save". Þessi mappa er oftast á sameiginlegu netdrifi allra notenda. Þá verður spurt hvort skrifa eigi yfir þá Rai.exe skrá sem fyrir er, og þá skal smella á "Yes".
  • 3. Þegar þessu er lokið er búið að uppfæra forritið. Þá er bara að prófa að opna það og athuga hvort að uppfærslan hafi ekki örugglega tekist. Hægt er að fara í "Hjálp" og "Um forritið" og ganga úr skugga um að þetta sé nýjasta útgáfan, en þar má sjá útgáfunúmer forritsins.

 

Uppsetning miðað við að forritið er geymt hjá hverjum og einum notanda. Ekki er mælt með því að forritið sé geymt á þennan hátt nema sérstök ástæða sé til. Í þessu tilviki þarf hver og einn notandi að uppfæra forritið hjá sér.

  • 1. Sá notandi sem er að uppfæra forritið þarf að ganga úr skugga um að hann sé ekki með það opið.
  • 2.Smella skal með músinni á hlekkinn hér til hliðar.  icon RAI Forritið
    Þegar File Download glugginn birtist skal smella á Save takkann og þegar Save as glugginn birtist skal finna þá möppu þar sem skráin Rai.exe er geymd og velja síðan "Save". Þessi mappa er oftast á hörðum disk á tölvu viðkomandi notanda. Þá verður spurt hvort skrifa eigi yfir þá Rai.exe skrá sem fyrir er, og þá skal smella á "Yes".
  • 3. Þegar þessu er lokið er búið að uppfæra forritið. Þá er bara að prófa að opna það og athuga hvort að uppfærslan hafi ekki örugglega tekist. Hægt er að fara í "Hjálp" og "Um forritið" og ganga úr skugga um að þetta sé nýjasta útgáfan, en þar má sjá útgáfunúmer forritsins.